Skilmálar

Við mælumst til að þú kynnir þér rétta notkun í handbókum þannig að tækið geti þjónað þér sem lengst og best. Góð meðferð tryggir langa endingu.

Ef einhverjar spurningar vakna þá hikaðu ekki við að hafa samband við okkur. Sími hjá sölufulltrúum okkar 480-3300, þjónustusími 480-3303.

Ábyrgðarskilmálar
Reikningur gildir sem ábyrgðarskírteini skv. almennum reglum og viðteknum venjum fyrir ábyrgðarskyldar vörur. Notuðum búnaði fylgir ekki ábyrgð nema það sé sérstaklega tilgreint. Vinna við gagnaflutning fellur ekki undir ábyrgðarvinnu, né enduruppsetning hugbúnaðar. TRS undarskilur sig allri ábyrgð á afleiddu tjóni sem kann af bilun, svo sem endurvinnslu gagna, töpuðum hagnaði o.þ.h.

Ábyrgðin miðast ávallt við að tæki komi á verkstæði okkar til viðgerðar. Óski viðskiptavinur eftir að komið sé til hans, greiðist sérstaklega fyrir akstur og ferðatíma.

Tækið fellur úr ábyrgð m.a úr ef.:
1. Aðrir en tæknimenn TRS hafa gert við það, eða gert tilraun til að gera við það, án sérstaks samþykkis TRS.
2. Verksmiðjunúmer hefur verið fjarlægt.
3. Tækið hefur verið tengt við ranga spennu eða straumtegund.
4. Ísetnig á íhlutum, s.s minni, geisladrifi og þess háttar, er unnin af öðrum en starfsmönnum TRS, og veldur því að viðkomandi hlutur eða annar bilar við aðgerðina.

Ábyrgð gildir ekki ef um eðlilegt slit eða rekstrarvörur er að ræða. Ef seld eru notuð tæki fylgir þeim ekki ábyrgð.

Athugið að reikningur gildir sem ábyrgðarskírteini enda kemur raðnúmer tækis þar fram.
Glatað skírteini=glötuð ábyrgð

TRS er ekki skaðabótaskylt vegna tjóns sem eigandi verður fyrir vegna galla á forriti eða hörðum diski, né tjóns sem stafar af rangri meðferð, misnotkun eða slysni

Hið selda er eign seljanda þar til verðið er að fullu greitt.

Verð
Verð í vefverslun eru með virðisaukaskatti og geta breyst án fyrirvara. Reikningar eru gefnir út með virðisaukaskatti. Allar vörur í vefverslun eru birtar með fyrirvara um villur í verði, magni eða texta.

Greiðslur í netverslun
TRS býður viðskiptavinum sínum að greiða fyrir vörukaup með greiðslukortum í vefverslun sinni í gegnum örugga greiðslusíðu Borgunar.

Örugg greiðslusíða gerir söluaðilum kleift að taka við kreditkortagreiðslum á einfaldan og öruggan hátt. Kaupandi velur vöru eða þjónustu á vefsíðu söluaðila og við greiðslu er hann fluttur yfir á örugga greiðslusíðu þar sem kortaupplýsingar eru skráðar og greiðsla fer fram. Þegar leitað hefur verið eftir heimild fyrir færslu, berst staðfesting til viðskiptavinar og söluaðila.

TRS tekur hvorki við né geymir kortanúmer viðskiptavina sinna.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði og allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp eru trúnaðarmál og verða aldrei afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Almennt
TRS áskilur sér rétt til að hætta við afgreiðslu á pöntun t.d. vegna rangra verð- eða magnupplýsinga sem koma fram í netverslun. Þetta á einnig við ef villur koma upp í reiknireglum vefverslunar. Einnig áskilur TRS sér rétt til að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á einstakar vörur eða vörutegundir fyrirvaralaust.

Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003.

TRS ehf.
Kt. 700895-2549
Vsk. nr. 47732

Lögheimili og varnarþing TRS ehf. er á Selfossi.