480-3300

Þjónusta

Verkstæði

TRS rekur öflugt tölvu- og rafeindaverkstæði. Viðgerðirnar spanna frá tölvum, prenturum, faxtækja og ljósritunarvéla til sérhæfðra mælitækja og stýritölva jafnt á verkstæðinu sjálfu og í útköllum.

Starfsmenn verkstæðis eru viðurkenndir af Microsoft og er verkstæði TRS einnig viðurkenndur þjónusutuaðili fyrir Opin kerfi, Nýherja og EJS.

 

Beinn sími verkstæðis er 480 3303

 

Netdeild

 

TRS hefur á að skipa öflugri netdeild sem sér um tölvukerfi hjá fjöldan öllum af fyrirtækjum og stofnunum á Suðurlandi og í Reykjavík.

 

Starfsmenn netdeildarinnar eru viðurkenndir af fyrirtækjum eins og Microsoft og HP en að auki hafa þeir lokið viðamikilli endurmenntun í búnaði frá Cisco, Redhat, Linksys og APC.

 

Í netdeildinni eru jafnt hugbúnaðar- og vélbúnaðarsérfræðingar þannig getum við séð um allar almennar og sérhæfðar viðgerðir, lagnavinnu, uppsetningar og bilanagreiningar í smáum sem og stórum tölvukerfum.

 

TRS er Microsoft Gold Certified Partner og þýðir það að starfsfólk TRS fær greiðari aðgang að sérfræðingum Microsoft varðandi nýjar vörur, uppsetningar og vandamál og lausnir á þeim.

 

Rekstrarsamningar

 

Rekstrarsamningar er hlutur sem verður sífellt vinsælli hjá stærri fyrirtækjum og stofnunum. Þegar rekstrarsamningur er gerður tekur netdeild TRS við tölvukerfi viðskiptavinarins og sér um að reka það frá A-Ö fyrir fasta upphæð á ári. Þar með verður kostnaður við kerfið þekktur og viðskiptavinur þarf ekki að óttast ófyrirséðan kostnað í rekstri tölvukerfisins.

 

Þjónustusamningar

 

Í fyrirtækjum þar sem stjórnendur vilja hafa aðgang að tæknimanni um leið og vandamál kemur upp og jafnframt að fylgst sé með álagsvinnslum í tölvukerfinu koma þjónustusamningar inn. Þar tryggir viðskiptavinurinn sér ákveðna hluti eins og forgangsþjónustu, símaþjónustu, eftirlit og uppfærslur. Þjónustusamningar eru í flestum tilfellum sérsniðnir að þörfum viðskiptavina þannig að allir fái samning sem hentar viðkomandi rekstri.

 

Fjarskipti


TRS hefur á að skipa hæfum hóp starfsfólk sem fæst við nýlagnir og viðhald á fjarskiptakerfum, hvort sem um að ræða fjarskipti um kopar, ljósleiðara eða örbylgju.

 


Hleður...