Canon PIXMA Pro9000 Mark II A3+
Canon Pro9000 Mark II A3+ bleksprautuprentari fyrir ljósmyndara
Auktu möguleika þína með því að prenta út í stærðum upp í allt að A3+ og 14x17". Fáðu lita- og svarthvítar prentanir sem uppfylla kröfur atvinnumanna með breiðu úrvali af pappír. PIXMA Pro9000 Mark II skilar betri útkomu, hraðar!
A3+ ljósmyndaprentari sem uppfyllir kröfur atvinnumanna - fáðu betri útkomu, hraðar!
- Atvinnumanna-prentun upp í A3+ & 14" breiðprentanir
PIXMA Pro9000 Mark II gerir þér kleift að búa til líflegar og nákvæmar prentanir í mörgum stærðum, frá 10x15 og upp í A3+ og 14" pappír - frábært fyrir sýningar.
- Frelsi í pappír
Með PIXMA Pro9000 Mark II getur þú prentað á víðtækt úrval af pappír - Canon glans, mattan og Fine Art pappír. Þá styður prentarinn ýmsan pappír frá öðrum framleiðendum, sbr. Hahnemuhle, Innova, Arches, Canson & Pictorico, þannig að þú hefur algjört frelsi í pappír. Vegna <(>,, <)>flat printing path" er mögulegt að prenta á spjöld og striga sem eru allt að 1.2mm að þykkt.
- 8 blekhylki fyrir breitt litasvið
Með 8 blekhylkjum, þ.á.m. rauð og græn blekhylki, þannig að hægt er að endurskapa breiðara svið af
litum. Mjög hentugt að skipta út blekhylkjunum en þar sem um er að ræða 8 stök hylki þá skilar það minni blekeyðslu og lægri rekstrarkostnaði fyrir þig.
- FINE prentgæði og 16 bit pr. rás
Canon FINE prenthausinn er búinn til úr <(>,,<)>full- photolithography" ferli þannig að stjórnun á hverjum dropa
er afar nákvæm ásamt því að skila há-upplausn í 4800x2400dpi. Árangurinn er mjög nákvæmar myndir, lausar við korn. 16 bita prentun pr. rás skapar mjúk blæbrigði í lit og svarthvítu og gerir þér kleift að fá
sem mest út úr 16 bita myndunum þínum.
- Glæsilegar svarthvítar útprentanir
Með því að nota Easy-PhotoPrint Pro Plug-in, sérstaka svarthvíta stillingu og háþróaða <(>,,<)>cool/warm"
stillingu fást fallegar svarthvítar ljósmyndir með mjúkum blæbrigðum. Endurbætt prentvél tryggir einnig gæði og hraða þegar prentuð er gráskalaprentun.
- Adobe PS Elements 6.0 og Easy-PhotoPrint Pro Plug-in fylgir með
Fyrir skilvirka ljósmyndavinnslu fylgir með Adobe Photoshop Elements 6 ásamt Canon Easy-PhotoPrint Pro Plug-In fyrir PhotoShop eða Digital Photo Professional (DPP) sem gerir þér kleift að setja upp margar
myndir og stilla prentstillingar á skjánum.
- Ambient Light Correction
Ambient Light Correction* eiginleikinn leiðréttir sjálfvirkt litatóna þannig að þeir verði nákvæmir í þeim
birtuskilyrðum þar sem myndirnar verða sýndar.











